16.8.2009 | 21:50
íbúðinn okkar á spáni er til leigu þegar við erum ekki að nota hana.
Íbúðin er þriggja herbergja og er við hvítu Costa Blanc Ströndina við Miðjarðarhaf. Torrevieja er einn af sólríkustu stöðum spánar og státar af um 300 sólardögum á ári að meðaltali.
Frá flugvellinum í Alecante eru 48 km til Torrevieja og þaðan er u.þ.b. 20 m akstur til þriggja golfvalla rétt sunnan við Torrevieja.
Örstutt um 10m akstur er á hvítu Costa Blanca ströndina sem er um 25 km löng en hún er talin með hreinustu baðströndum Evrópu. Göngufæri er á aðrar minni strendur.
Nýlega fékk Torrevieja viðurkenningu sem hreinasti og snyrtilegasti bær spánar.
Í íbúðinni er gistirými fyrir 4-6, í henni er m,a. sjónvarp,þvottavél,hverfissundlaug og sér sundlaug fyrir börn rétt við íbúðina, og á þaki stór sólarverönd.
Örstutt er í verslanir, veitingastaði, skemmtigarð og stór vatnagarður er í 15 min göngufæri. 700metrar í Carrifour sem er stór verslanamistöð, þar fðst allt milli himins og jarðar Á föstudögum er einn stðrsti útimarkaður í Evrópu ú u.þ.b. 10 min göngufæri fá íbúðinni. Einnig eru minni markaðir alla daga vikunar í innan við 20 min akstur frá Torrevieja.
Aðeins 15 til 20 mínútna gangur er í miðbæinn, þar er fjöldi veitingastaða, verslanir og fjölbreytt kvöldlíf. Mjög gaman er að ganga á kvöldin meðfram sjávarströndinni þar sem allt iðar af mannlífi og útimörkuðum og á hverju kvöldi er opið tívolí yfir sumarmánuðina.
Margir leggja leið sína til Torrevieja til að dbelja í heilnæmu loftslagi og njóta ódýrra lífsnauðsynja sé miðað mið löndin noðar í Evrópu.
Sjá myndir hér til vinstri.
Hafið samband í e-mail eða Gsm. (sjá við mynd af höfundi.)
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.